Ný Síđa
Þið getið nálgast nýju síðuna mína hérna: BaraTinna.Blogspot.Com
Áttatíogfimm
’85 vikan komin á fullt skrið. Mætti að sjálfsögðu í gammó, hálsmálslausum bol, converse skóm og með hliðartagl í skólann á mánudaginn. Það voru ekki margir með mér í hallærinu þennan dag, en það er alveg makalaust hvað 1. og 2.bekkur er hræddur við að mæta í ‘85 fötum í skólann. Kannski vegna þess að þau eru ekki komin með bílpróf og þurfa að taka strætó í skólann. Á mánudagskvöldið var svo diskókeila sem ég sá mér ekki fært að mæta á vegna mikils skorts á peningum.
Í gær, þriðjudag, var maður mættur eins og fyrri daginn í því sem maður náði að grafa upp úr geymslunni. Svo um kvöldið skelltum ég og Valdi okkur á bílabíó og horfðum á Ghostbusters. Rosalega skemmtileg tilbreyting frá bíósalnum og stofunni heima. Í kvöld er það svo hæfileikakeppnin, en það er spurning hvort að ég hafi tíma til að kíkja á hana. Er nefnilega að fara á æfingu á hæfileikaatriði Tónabæjar á tvenndarleikunum sem haldnir verða á laugardaginn. Tvenndarleikarnir eru einskonar keppni á milli borgarhluta ÍTR (Tónabæjar, Gufunesbæjar, Miðbergs og svo man ég ekki hvað hinir heita). Það verður keppt í blaki, fótbolta, kubbi, hæfileikaatriði og svo skiptir stuðningsliðið gríðarlegu máli. Mikil leynd ríkir um hæfileikaatriðið frá Tónabæ, en ég get þó sagt ykkur að það er awesome!
Annað kvöld er svo ballið sjálft og er gríðarlega mikil spenna í loftinu hjá MSingum. Ég sjálf er orðin gríðarlega spennt, en þetta er því miður síðasta ’85 ballið sem ég fer á. Vá, ég trúi ekki að ég sé orðin svona stór. Það er bara 3 ½ vika eftir af skólanum á haustönn og þá er bara vorönnin eftir. Svo er menntaskólinn bara búinn. Finito. Vá.
Hetja
Ég hef alltaf átt mér ákveðna karlhetju. Hann hefur ávallt staðið við hlið mér sama hvað, stutt mig í því sem mig langar að gera og styrkt mig og verið frábærasta fyrirmynd
sem nokkur litla systir gæti hugsað sér. Endilega takið ykkur fimm mínútur og lesið Róninn og ég, færslu eftir bróður minn, Gunnar Örn Heimisson.
Mér leiddist svakalega þegar þessi bloggfærsla var skrifuð:
Listi yfir pirrandi fólk:
-
Gunnar Hanson - Þáttastjórnandi "Ertu skarpari en skólakrakki"
-
Einn gaur - Kennari í MS sem heldur að hann sé “all that”
-
Kevin Federline - Hverjum er ekki sama?
-
Tom Cruise - Bara of pirrandi týpa
-
Francesco Totti - Sjúgðu bara á þér þumalinn fáviti
-
Scarlett Johanson - Þú ert ekki svona frábær, get over yourself
-
José Mourinho - Að kasta medalíunni fyrir sigurinn í deildinni og jakkanum þínum í áhorfendur 3 mín eftir afhendingu er ekki cool.
-
Sigríður spákona - Full of shit, og hvað er málið með fjaðrirnar í hárinu á henni?
-
Daníel Ben - Þáttastjórnandi í Vörutorgi
-
Bubbi Morthens - Eftir Idolið og Bandið hans Bubba, nei takk
-
Halla Vilhjálms - Grenjuskjóða
-
Rachael Ray - Getur þú bara aldrei haldið kjafti kona?
-
Guðrún Gunnarsdóttir - Farðu og skemmtu þér með Friðriki Ómari einhverstaðar annars staðar
-
Þorgrímur Þráinsson - Muniði eftir atriðinu í Fóstbræðrum þegar Jón Gnarr var að reyna að ná betur til krakkanna?
Takk fyrir mig
Sims
Hann skal verðlaunaður sem getur lánað mér upprunalega Sims leikinn.

Komin heim frá DK
Ef þú ferð til Kaupmannahafnar og verður svöng/svangur nálægt Istegade, alls alls ekki fara inn á Thai-staðinn þar og fá þér rækjur. Bara smá ábending.
Danmörk er uppáhaldslandið mitt. Þar vil ég búa. Ég skemmti mér svo vel þar í síðustu viku, undir lokin var mér farið að líða eins og innfæddri. Ég var orðin ansi sleip í dönskunni og mér leið vel þar. Mér líkar vel við andrúmsloftið þar, fólkið, lestarnar, gróðurinn og tungumálið.
Ég er svo mikill nostalgíu-fíkill. Ég sakna þess svo að þegar maður var að sækja einhvern á flugvöllinn eða var að koma heim frá útlöndum sá maður alltaf hina í gegnum glerið. Mér líkar ekki við hina nýju flugstöð. Ég vil gömlu góðu aftur. Svo langar mig líka í Kool-Aid. Þá er nóg komið af nostalgíunni.
Nú skal ég hætta þessari vitleysu. Vi ses. Hilsen Tinna Heimisdóttir
Ok, nú lofa ég að hætta þessu með nostalgíuna :)
Hos Lćrke i Danmark :)
Ætladi ad skrifa thetta a donsku, en eg læt her vid sitja :) Eg er stodd i Danaveldi med Petri Rasmusen og Lou kennurum i MS asamt ollum bekknum minum og malabraut i 3.bekk. Hingad til hefur litid verid sofid og bordad en mikid um bjordrykkju ;) Vid lentum um hadegi a fostudaginn og vorum komin ad hitta Danina um kl14. Tha forum vid heim til theirra og komum okkur fyrir. Eg og Kristjana erum hja stelpu sem heitir Lærke og hun er mjog fin, og fjolskyldan hennar er ædi lika :)
Um kvoldid var svo party og thadan var farid a 80's ball i skolanum theirra, og bjorinn thar kostadi 10 kr!!! (120 islkr) Eg var ordin svo drukkin og threytt eftir engan svefn nottina sem vid flugum ut ad eg for snemma heim ad sofa.
Vaknadi svo kl 9 a laugardagsmorgun og for og hitti hina Islendingana a lestarstodinni. Lobbudum svo thadan i Frederiksborg Slot sem er kastali herna og skodudum hann ad mestu leyti...vangefid flottur :) Svo fengum vid fritima eftir kl13 og forum og bordudum a Twins Pizza og thar fekk eg salad pizza sem er pizza med venjulegu aleggi og kali gurkum tomotum og dressingu sem var rosa gott. Eg og Kristjana forum svo um kvoldid heim til Sogu og hennar stelpu, sem eldadi fyrir okkur ædislegan mexikoskan mat :) Svo forum vid i party til Solveigar og Moggu stelpu og um midnætti forum vid a e-h bar sem heitir Hoe....(hehe en thad er borid fram hú)...
I dag tokum vid lest til Roskilde og skodudum domkirkjuna thar og e-h vikingaskip og thad var alveg fint. Thegar heim var komid var hoppad beint i rjukandi heita sturtu og svo var rosa godur kjuklingur i matinn og eplapæ i eftirrett :) Vid matarbordid var svo mikid talad um svid og hrutspunga og lunda og allskonar thorramat og islenska sidi. Mjog gaman ad fræda annad folk um landid sitt :) A morgun forum vid svo i skolann med theim og sitjum i timum og fylgjumst med...spennandi ad sja hvernig thad verdur.
En nuna ætlum vid ad hafa kosy kvold og horfa a DVD og borda nammi :D
Venlig hilsen fra Danmark, Tinna :)
Kvef
Er ruddalega kvefuð! Og er búin að hanga inni oooof lengi!
Er búin að horfa á næstum því allar seríurnar af Friends......aftur!! :S
Fór samt á leiklistaræfingu í gær og það var alveg mjöög gaman :)
Ætla líka á pókerkvöld í kvöld.....hlakka ýkt til :D
Svo er líka hryllingssvið, manutd svið og fóstbræðrasviðið mitt....þetta verður góður sviða-vetur :)
Danirnir koma svo á morgun :) Maður er farinn að hlakka aðeins til.
Svo styttist líka í okkar ferð til Danmerkur 5.-12. október.
Og Thelma frænka kemur heim 17.október í prófalestur
Verður gaman að fá hana heim :)
Man ekki eftir neinu meiru......skrifa þegar ég hef eitthvað að segja :)
Kv. Tinna
Busar
Busavika MS farin af stað. Og Már er tík. Hann vill halda GRILLVEISLU fyrir busana í staðin fyrir busun!!! Og hann tekur ekki sönsum. Strákarnir í Skúmus (sem sjá um busunina) eru að reyna að biðja hann að koma til móts við sig, en hann lætur ekki bugast. Veit ekki alveg hvernig þessi maður getur gegnt embætti rektors svona lengi. Verð að segja að mér finnst hann vera óhæfur í þetta starf, margt sem má betur fara hjá honum. (er ekki bara að vera bitur útaf þessu, heldur flestu sem hann tengist í skólanum!)
En þá á léttari nótunum. Er búin að segja upp hjá Íslandspósti og er byrjuð að vinna aftur í Sólbúum. Svaka fjör. Ætla svo að halda fyrirpartý fyrir busaballið á fimmtudaginn, ef það verður þá eitthvað ball....:S Er að vera neikvæð núna, ég veit... Annars stofnaði ég nú svið í skólanum áðan, Fóstbræðrasvið. Enda eignaðist ég allar seríurnar um daginn, og þær koma út á DVD um jólin :D
Ég er svo að fara til Danmerkur 5.-12.október og það koma Danir til okkar 19.-26.september. Hlakka geggjað til...:)
Ég er lasin og þreytt og ég get ekki meir....
Kv. Eámanë Míriel :)